Stjórn Akureyrarstofu

197. fundur 15. október 2015 kl. 16:15 - 18:10 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Akureyrarvaka 2015

Málsnúmer 2015010036Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð um framkvæmd og rekstur Akureyrarvöku 2015. Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála á Akureyrarstofu mætti á fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Huldu Sif fyrir greinargóða yfirferð á vel heppnaðri Akureyrarvöku.

2.Menningarsjóður 2016 - styrkveitingar

Málsnúmer 2015100080Vakta málsnúmer

Farið yfir tímaramma fyrir styrkveitingar og ákvarðanir um starfslaun listamanna úr Menningarsjóði á næsta ári. Jafnframt rætt um skipan ráðgjafahóps stjórnarinnar vegna starfslaunanna.
Ákveðið að hafa úthlutun úr Menningarsjóði fyrr á árinu 2016 en verið hefur undanfarin ár. Auglýst verður eftir umsóknum í desember á yfirstandandi ári.

3.Listasumar 2015

Málsnúmer 2014080143Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð um framkvæmd og rekstur Listasumars 2015. Guðrún Þórsdóttir verkefnisstjóri hátíðarinnar mætti á fundinn og Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri tók þátt í umræðum í gegnum Skype.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Guðrúnu og Hlyni fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlega umræðu. Jafnframt óskar stjórnin þeim og öðrum aðstandendum til hamingju með endurvakið Listasumar á Akureyri.

4.Umsókn um áframhaldandi afnot af Friðbjarnarhúsi fyrir Leikfangasýningu

Málsnúmer 2015100043Vakta málsnúmer

Erindi dags. 5. október 2015 frá Guðbjörgu Ringsted, f.h. Leikfangasýningarinnar í Friðbjarnarhúsi, þar sem óskað er eftir áframhaldandi notum sýningarinnar af húsnæðinu en samningur þar um rennur út í lok yfirstandandi árs.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að núverandi samningur verði framlengdur um eitt ár.

Fundi slitið - kl. 18:10.