Skipulagsnefnd

127. fundur 23. nóvember 2011 kl. 08:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson formaður
  • Haraldur Sveinbjörn Helgason
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Auður Jónasdóttir
  • Pálmi Gunnarsson
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
Dagskrá

1.Dalsbraut sunnan Þingvallastrætis og nágrenni - deiliskipulag

Málsnúmer 2011050111Vakta málsnúmer

Deiliskipulag Dalsbrautar og nágrennis var auglýst frá 28. september til 10. nóvember 2011.
Tillagan var sett fram á deiliskipulags- og skýringaruppdráttum ásamt greinargerð, dagsett 12. september 2011.
Einnig fylgdi húsakönnun dagsett 12. september 2011 ásamt skipulagslýsingu dagsettri 30. maí 2011 ásamt eftirtöldum skýrslum:
a) Hljóðstig við Dalsbraut og Miðhúsabraut - Línuhönnun- 2003.
b) Dalsbraut / Miðhúsabraut - Línuhönnun- 2004.
c) Athugun á þörf fyrir lagningu Dalsbrautar -Efla- 2010.
d) Ávinningur og kostnaður -Efla- 2010.
e) Hljóðvist, endurskoðun hljóðvarna við Dalsbraut -Efla- 2010.
54 athugasemdir bárust við tillöguna á athugasemdartíma.
Úrdráttur úr innsendum bréfum koma fram í meðfylgjandi skjali merkt "Dalsbraut-athugasemdir dagsett 10. nóvember 2011".

Innsendar athugasemdir lagðar fram og  yfirfarnar.

Frestað.

2.Lerkilundur 15 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2011090147Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. september 2011 þar sem Halldór Snæbjörnsson og Gróa Björk Jóhannesdóttir sækja um leyfi til að setja risþak ofan á bílskúr, endurnýja þak og glugga og fl. á húsinu Lerkilundi 15, var sent í grenndarkynningu þann 14. október 2011 og lauk henni þann 11. nóvember 2011. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

3.Stjórnsýsla - íþróttaaðstaða

Málsnúmer 2011110068Vakta málsnúmer

Bjarni Sigurðsson f.h. hverfisnefndar Naustahverfis mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa og vísaði bæjarráð lið b) til skipulagsnefndar.
b) Íþróttaaðstaða:
Hverfisnefndin leggur fram fyrirspurn um hver staðan sé á uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Naustahverfi. Nefndin spyr um stöðu skipulagsvinnunnar og hvort að standi til að koma upp grasvöllum í Naustahverfi.

Samkvæmt þegar deiliskipulögðum svæðum í Naustahverfi I og II er ekki gert ráð fyrir sérstakri íþróttaaðstöðu annarri en aðstöðu sem komið verður við á hverfisvöllum og grenndarvöllum. Hverfisvellir er skilgreindir í gildandi deiliskipulagi við Ljómatún, Kjarnagötu og Mýrartún og grenndarvellir við Sómatún, Hólatún og Skálatún.

Nú þegar stendur yfir deiliskipulagsvinna vegna Naustahverfis III en í þeim drögum er fyrst og fremst gert ráð fyrir íbúðarbyggð.

4.Dalsbraut sunnan Þingvallastrætis og nágrenni

Málsnúmer 2011110005Vakta málsnúmer

Bæjarráð á fundi 3. nóvember 2011 vísaði til skipulagsnefndar eftirfarandi úr viðtalstíma bæjarfulltrúa:
Hrafnhildur Ólafsdóttir og Magnús Traustason mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa og vildu lýsa ánægju sinni með Dalsbraut og hvernig staðið væri að kynningu hjá bæjaryfirvöldum. Bentu þó á að þörf væri á kynningu á Dalsbraut fyrir aldraða í Víðilundi.
Þá lýstu þau yfir mikilli óánægju sinni með lagningu Brálundar og framgöngu bæjaryfirvalda í því máli.

Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendingu um kynningu fyrir íbúa við Víðilund en bendir á haldinn var íbúafundur í Lundarskóla þ. 8. september s.l. þar sem deiliskipulagstillagan var sérstaklega kynnt íbúum hverfisins. Gatnaframkvæmdir við Brálund eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en beðið er eftir úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála um heimild til að tengja Brálund við Miðhúsabraut.

5.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010-2011

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 9. nóvember 2011. Lögð var fram fundargerð 372. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 3 liðum.

Lagt fram til kynningar.

6.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010-2011

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 16. nóvember 2011. Lögð var fram fundargerð 373. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 10 liðum.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:00.