Samfélags- og mannréttindaráð

139. fundur 15. janúar 2014 kl. 17:00 - 18:15 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Regína Helgadóttir
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigmundur Sigfússon áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá
Jóhann Gunnar Sigmarsson A-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur og Sigmundur Sigfússon áheyrnarfulltrúi V-lista mætti í forföllum Guðrúnar Þórsdóttur.

1.Félagsmiðstöðvar - starfsemi 2014

Málsnúmer 2014010105Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála kynnti áherslur ársins í starfi félagsmiðstöðvanna.

2.Ungmenna-Hús - starfsemi 2014

Málsnúmer 2014010106Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála kynnti áherslur ársins í starfi Ungmenna-Hússins.

3.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015

Málsnúmer 2011100052Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt um tilraunaverkefni í kynjasamþættingu og kynjaðri fjárhagsáætlanagerð sem unnin voru á árunum 2012-2013.

4.Landsmót skáta að Hömrum 20.- 27. júlí 2014

Málsnúmer 2013070062Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Bandalagi íslenskra skáta dags. 9. júlí 2013 þar sem fram kemur að Landsmót skáta verður haldið að Hömrum 20.- 27. júlí 2014. Starfsmenn Akureyrarbæjar hafa átt fundi með forsvarsfólki landsmótsins vegna mögulegrar aðkomu bæjarins.

Fundi slitið - kl. 18:15.