Kjarnagata 58 - reyndarteikningar

Málsnúmer BN100155

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 389. fundur - 14.03.2012

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum að Kjarnagötu 58.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 418. fundur - 24.10.2012

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum að Kjarnagötu 58.
Ítrekun send út 22. júní 2012, tilmælum um skil á nýjum teikningum hefur ekki verið sinnt.

Þar sem ítrekun Skipulagsdeildar frá 22. júní 2012 um skil á gögnum vegna erindis yðar hefur ekki verið sinnt samþykkir skipulagsstjóri lokafrest til 15. nóvember 2012 til að skila inn umbeðnum gögnum.

Ef gefinn frestur verður ekki virtur mun aðgerðum 56. greinar Mannvirkjalaga nr. 160/2010 beitt til að knýja fram úrbætur. Með vísan til 13 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er yður gefinn 10 daga frestur frá móttöku þessa bréfs til að andmæla eða tjá yður um málið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 420. fundur - 07.11.2012

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnagötu 58. Innkomnar nýjar teikningar 1. nóvember 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.