Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

418. fundur 24. október 2012 kl. 13:00 - 14:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Ásatún 12-18 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012100126Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um byggingarleyfi á lóð nr. 12-18 við Ásatún. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Einnig er óskað eftir undanþágu frá gildandi byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangur og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Barmahlíð 8 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012100046Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. október 2012 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Sigurgeirs Svavarssonar ehf., kt. 680303-3630, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 8 við Barmahlíð. Þar stóð áður hús sem brann. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Rögnvald Harðarson ásamt tilkynningu um hönnunarstjóra. Innkomnar nýjar teikningar 16. október 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Gilsbakkavegur 13 - reyndarteikningar

Málsnúmer 2012060200Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. júní 2012 þar sem Steinmar Rögnvaldsson f.h. Friðjóns Jóhannssonar leggur inn til yfirferðar reyndarteikningar af Gilsbakkavegi 13. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar Rögnvaldsson.
Innkomnar nýjar teikningar 17. október 2012. Meðfylgjandi eru aðalteikningar frá júlí 1986.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.OpenStreetMap - beiðni um aðgang að kortagögnum

Málsnúmer 2012090155Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. september 2012 frá Svavari Kjarrval Lútherssyni þar sem verkefnið OpenStreetMap er kynnt. Verkefnið snýs um að kortleggja allan heiminn og veita frjálsan aðgang að kortagögnum án endurgjalds. Óskað er eftir aðgangi að kortagögnum Akureyrarbæjar.

Skipulagsstjóri hafnar beiðninni þar sem umbeðin gögn liggja öll á heimasíðu Akureyrarbæjar og eru nú þegar aðgengileg til afnota og upplýsinga fyrir almenning.

5.Vörðutún 2, 4 og 6 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2011080016Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. ágúst 2011 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. eigenda að Vörðutúni 2, Jóhanns Oddgeirssonar, Vörðutúni 4, Margrétar Stefánsdóttur og Vörðutúni 6, Landsbankans, kt. 471008-0280, sækir um stækkun á lóðunum um 2 m til suðurs.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið í samræmi við deiliskipulagsbreytingu sem tók gildi 18. október 2012.

6.Kjarnagata 58 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN100155Vakta málsnúmer

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum að Kjarnagötu 58.
Ítrekun send út 22. júní 2012, tilmælum um skil á nýjum teikningum hefur ekki verið sinnt.

Þar sem ítrekun Skipulagsdeildar frá 22. júní 2012 um skil á gögnum vegna erindis yðar hefur ekki verið sinnt samþykkir skipulagsstjóri lokafrest til 15. nóvember 2012 til að skila inn umbeðnum gögnum.

Ef gefinn frestur verður ekki virtur mun aðgerðum 56. greinar Mannvirkjalaga nr. 160/2010 beitt til að knýja fram úrbætur. Með vísan til 13 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er yður gefinn 10 daga frestur frá móttöku þessa bréfs til að andmæla eða tjá yður um málið.

7.Kjarnagata 56 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN100154Vakta málsnúmer

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum að Kjarnagötu 56.
Ítrekun send út 22. júní 2012, tilmælum um skil á nýjum teikningum hefur ekki verið sinnt.

Þar sem ítrekun Skipulagsdeildar frá 22. júní 2012 um skil á gögnum vegna erindis yðar hefur ekki verið sinnt samþykkir skipulagsstjóri lokafrest til 15. nóvember 2012 til að skila inn umbeðnum gögnum.

Ef gefinn frestur verður ekki virtur mun aðgerðum 56. greinar Mannvirkjalaga nr. 160/2010 beitt til að knýja fram úrbætur. Með vísan til 13 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er yður gefinn 10 daga frestur frá móttöku þessa bréfs til að andmæla eða tjá yður um málið.

8.Heiðartún 1 - umsókn um garðhús

Málsnúmer 2011080089Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 25. ágúst 2011 þar sem Særún Emma Stefánsdóttir og Sigvaldi Páll Þorleifsson sækja um að setja garðhús við hús sitt númer 1 við Heiðartún. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Ítrekun send út 31. janúar 2012, þeim tilmælum hefur ekki verið sinnt.

Þar sem ítrekun Skipulagsdeildar frá 31. janúar 2012 um skil á gögnum vegna erindis yðar hefur ekki verið sinnt samþykkir skipulagsstjóri lokafrest til 15. nóvember 2012 til að skila inn umbeðnum gögnum.

Ef gefinn frestur verður ekki virtur mun aðgerðum 56. greinar Mannvirkjalaga nr. 160/2010 beitt til að knýja fram úrbætur. Með vísan til 13 gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er yður gefinn 10 daga frestur frá móttöku þessa bréfs til að andmæla eða tjá yður um málið.

9.Hólabraut 16 - umsókn um innanhússbreytingar

Málsnúmer BN110033Vakta málsnúmer

Innkomnar teikningar 19. október 2012 eftir Karl-Erik Rocksén þar sem óskað er eftir samþykkt á breytingum á áður samþykktum teikningum af Hólabraut 16.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:30.