Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

389. fundur 14. mars 2012 kl. 13:00 - 14:25 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Kjarnagata 56 - reyndarteikningar

Málsnúmer BN100154Vakta málsnúmer

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum að Kjarnagötu 56.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Kjarnagata 58 - reyndarteikningar

Málsnúmer BN100155Vakta málsnúmer

Innkomnar nýjar reyndarteikningar 5. mars 2012 eftir Fanneyju Hauksdóttur þar sem sótt er um ýmsar breytingar á áður samþykktum teikningum að Kjarnagötu 58.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

3.Mýrarvegur - rými 148916 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2011060084Vakta málsnúmer

Innkomin raunteikning 12. mars 2012 af Mýrarvegi landnr. 148916 þar sem stétt sunnan húss er mjókkuð og bílastæði fatlaðra fært.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Skipagata 14 - reyndarteikningar

Málsnúmer 2012030083Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2012 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Einingar Iðju, kt. 570599-2599, leggur fram reyndarteikningu af innra skipulagi á 2. hæð að Skipagötu 14. Meðfylgjandi er teikning og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

5.Vesturgil 18-20 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer SN090073Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. febrúar 2012 þar sem Benedikt G. Gunnarsson og Rannveig Heimisdóttir eigendur Vesturgils 18 og Pétur Haraldsson eigandi Vesturgils 20 sækja um stækkun á lóð nr. 18-20 við Vesturgil til samræmis við núgildandi deiliskipulag Giljahverfis.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Lóðarskrárritara er falið að láta þinglýsa yfirlýsingu um breytta lóðarstærð skv. nýju lóðarblaði í samræmi við gildandi deiliskipulag.

6.Skipagata 14 - 3. hæð sameign - umsókn um breytingum

Málsnúmer 2012030049Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. mars 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Félags verslunar- og skrifstofufólks, kt. 540169-1609, Sjómannafélag Eyjafjarðar, kt. 570269-0899, Félags málmiðnaðarmanna, kt. 541080-0669 og Félags vélstjóra-og málmtæknimanna, kt. 530169-5299, sækir um leyfi til að breyta snyrtingum í sameign á 3. hæð að Skipagötu 14. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Jaðarsíða 11-15 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012030098Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Árness ehf., kt. 680803-2770, og Karólínu ehf., kt. 660795-2439, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 11-15 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Tryggva Tryggvason. Einnig er umsókn um að fara eftir eldri byggingareglugerð 441/1998.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

8.Tungusíða 6 - umsókn um leyfi fyrir snyrtistofu í bílgeymslu

Málsnúmer 2012030024Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. mars 2012 þar sem Haraldur Árnason f.h. Snyrtistofu Gunnhildar slf., kt. 680212-0660, óskar er eftir bráðabirgðaleyfi (til 5 ára) til að starfrækja snyrtistofu í bílgeymslu að Tungusíðu 6. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason og skriflegt samþykki nágranna og eiganda neðri hæðar. Innkomnar nýjar teikningar 13. mars 2012.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

9.Jaðarsíða 6-12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu

Málsnúmer 2012030065Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Hagviðar ehf., kt. 450808-0750, sækir um leyfi fyrir breytingum frá áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar nýjar teikningar 13. mars 2012. Einnig er umsókn um að fara eftir eldri byggingareglugerð 441/1998 og óskað eftir undaþágu skv. nýrri byggingarreglugerð 112/2012 á eftirfarandi:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið h. varðandi hönnun umferðarleiða innan bygginga sjá kafla 6.4.
2. Gr. 6.7.2 Algild hönnun.
3. Gr. 6.7.8. Íbúðarherbergi varðandi kröfu um eitt 14m2 herbergi.
4. Gr. 9.5.5. Björgunarop varðandi kröfu um breidd og hæð.
5. Gr. 13.2.1 til 13.3.3 Varðandi útreikning heildarleiðnitaps, heildarorkuþarfar og hámarks U-gilda byggingarhluta.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Samþykkt byggingaráformanna fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út fyrir 31. desember 2012. Jafnframt bendir skipulagsstjóri á að æskilegt væri að verönd væri komið fyrir við suðurhlið hússins í stað norður hliðar hússins.

10.Hrísalundur 10 J - umsókn um leyfi fyrir svalalokun

Málsnúmer 2012030119Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. mars 2012 þar sem Stefán Guðnason leggur inn fyrirspurn um hvort leyfi fáist fyrir svalalokun á íbúð sinni að Hrísalundi 10J. Meðfylgjandi er útlitsmynd.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og óskar eftir umsókn um byggingarleyfi ásamt byggingarnefndarteikningum og samþykki húsfélagsins.

11.Kjarnaskógur - umsókn um varanlegt stöðuleyfi

Málsnúmer 2012030114Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. mars 2012 þar sem Ingólfur Jóhannsson f.h. Skógræktarfélags Eyfirðinga, kt. 600269-4299, óskar eftir að stöðuleyfi fyrir húseign félagsins í Kjarnaskógi lnr. 212056, verði breytt úr bráðabirgðastöðuleyfi í varanlegt stöðuleyfi.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

12.Munkaþverárstræti 10 - umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbótum

Málsnúmer 2012030144Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. mars 2012 þar sem Anton Brynjarsson f.h. Hjördísar Líneyjar Pétursdóttur óskar eftir leyfi til að hefja vinnu við lagfæringar á þaki hússins Munkaþverárstrætis 10.
Byrjað verður á austurhlið og ákvarðanir um aðgerðir teknar eftir því sem ástand þaksins kemur í ljós.
Anton Brynjarsson mun hafa umsjón með tæknilegum útfærslum og fylgjast með framkvæmdum. Haft verður samráð við byggingareftirlit um alla framkvæmd.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:25.