Margrétarhagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042900

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 863. fundur - 12.05.2022

Erindi dagsett 28. apríl 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 866. fundur - 02.06.2022

Erindi dagsett 28. apríl 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 25. maí 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 878. fundur - 25.08.2022

Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 881. fundur - 15.09.2022

Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 14. september 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.