Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

881. fundur 15. september 2022 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Norðurgata 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090220Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. september 2022 þar sem Almar Eggertsson fyrir hönd Sólveigar Klöru Káradóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 16 við Norðurgötu. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum í húsinu úr 4 íbúðum í 5. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Almar Eggertsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Furuvellir 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021101269Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. september 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd A441 ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 7 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Margrétarhagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042900Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 14. september 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.