Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

878. fundur 25. ágúst 2022 kl. 13:00 - 14:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson
Dagskrá

1.Steindórshagi 9-15 - umsókn um leyfi til að byggja skúr á lóðarmörkum bæjarins

Málsnúmer 2022070647Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júlí 2022 þar sem Guðmundur Bjarnar Guðmundsson sækir um leyfi fyrir skúr á lóðarmörkum bæjarins. Meðfylgjandi er samþykki eigenda Steindórshaga 9, 11 og 13.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hlíðarvellir 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022080721Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. ágúst 2022 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd atNorth ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði á lóð nr. 1 við Hlíðarvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hlíðarfjall, lyftuhús - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022080520Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. ágúst 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir stækkun neðra lyftuhúss í Hlíðarfjalli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Margrétarhagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022042900Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Hringteigur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2022081060Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. ágúst 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Verkmenntaskólans á Akureyri sækir um byggingarheimild fyrir frístundahúsi til flutnings á lóð nr. 2 við Hringteig. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:30.