Nonnahagi 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021110335

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 840. fundur - 18.11.2021

Erindi dagsett 5. nóvember 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Karenar Sigurbjörnsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 842. fundur - 02.12.2021

Erindi dagsett 5. nóvember 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Karenar Sigurbjörnsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 1. desember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Skipulagsráð - 372. fundur - 22.12.2021

Erindi dagsett 14. desember 2021 þar sem Karen Sigurbjörnsdóttir og Stefán Helgi Waagfjörð sækja um framkvæmdafrest á lóð nr. 3 við Nonnahaga. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í maí 2022.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 871. fundur - 07.07.2022

Erindi dagsett 4. júlí 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Karenar Sigurbjörnsdóttur sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.