Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

871. fundur 07. júlí 2022 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórunn Vilmarsdóttir verkefnastjóri
  • Katrín Rós Ívarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Baldursnes 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022050708Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. maí 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Kjarnagötu 53 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Baldursnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar teikningar 28. júní 2022.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Beykilundur 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022060569Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. júní 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hildigunnar Rutar Jónsdóttur, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við suðurenda íbúðarhúss ásamt smávægilegum breytingum á innra skipulagi á húsi nr. 11 við Beykilund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 30. júní 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Nonnahagi 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021110335Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. júlí 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Karenar Sigurbjörnsdóttur sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 3 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.