Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis), 275. mál

Málsnúmer 2020110562

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 348. fundur - 25.11.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2020 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis), 275. mál 2020. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/00307.html
Skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulagssviðs að koma á framfæri athugasemdum ráðsins og sviðsstjóra skipulagssviðs við frumvarpið.

Bæjarráð - 3707. fundur - 26.11.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2020 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (uppbygging innviða og íbúðarhúsnæðis), 275. mál 2020.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/00307.html