Steps Dancecenter - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020100699

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 308. fundur - 05.11.2020

Umsókn dagsett 23. október 2020 frá Guðrúnu Huld Gunnarsdóttur þar sem sótt er um styrk úr Menningarsjóði að upphæð kr. 2.000.000 vegna verkefnisins Eurovision Dansveisla í Beinni.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu.