Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000 (jöfnun atkvæðavægis), 27. mál

Málsnúmer 2020100546

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3703. fundur - 29.10.2020

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 20. október 2020 frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 (jöfnun atkvæðavægis), 27. mál 2020.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. nóvember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0027.html
Bæjarráð Akureyrarbæjar óskar eftir því að á vettvangi SSNE verði frumvarpið rætt sem og nauðsynlegar mótvægisaðgerðir.

Ungmennaráð - 15. fundur - 04.03.2021

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um stjórnarskipunarlög (kosningaaldur), 188. mál.
Ungmennaráð Akureyrarbæjar er sammála breytingum um lækkun kosningaaldurs niður í 16 ára og sendir inn umsögn með rökstuðningi til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.