Austurvegur 9 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016040109

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 229. fundur - 27.04.2016

Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Wave Guesthouse Hrísey ehf., kt. 480615-2390, sækir um að breyta efri hæð hússins nr. 9 við Austurveg í Hrísey í gistiskála. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.

Skipulagsnefnd - 231. fundur - 11.05.2016

Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Wave Guesthouse Hrísey ehf., kt. 480615-2390, sækir um að breyta efri hæð hússins nr. 9 við Austurveg í Hrísey í gistiskála. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson. Skipulagsnefnd frestaði erindinu á fundi 27. apríl 2016.
Skipulagsnefnd frestar erindinu og felur skipulagsstjóra að grenndarkynna erindið og óska eftir umsögn hverfisráðs Hríseyjar.

Skipulagsnefnd - 236. fundur - 22.06.2016

Tekin til afgreiðslu tillaga um að breyta efri hæð hússins nr. 9 við Austurveg í Hrísey í gistiskála. Erindið var grenndarkynnt 18. maí og var athugasemdafrestur til 15. júní 2016.

Engin athugasemd barst.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 591. fundur - 27.06.2016

Erindi dagsett 13. apríl 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Wave Guesthouse Hrísey ehf., kt. 480615-2390, sækir um að breyta húsnæði í gistiskála við Austurveg. Erindinu fylgir teikning eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 592. fundur - 07.07.2016

Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Wave Guesthouse Hríey ehf., kt. 480615-2390, sækir um að breyta húsnæði í gistiskála við Austurveg 9 í Hrísey. Innkomnar teikningar 30. júní 2016 eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.