Atvinnuátaksverkefni fyrir námsmenn og atvinnuleitendur í samvinnu við Vinnumálastofnun sumarið 2013

Málsnúmer 2013040124

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3363. fundur - 18.04.2013

Lagt fram erindi frá Vinnumálastofnun dags. 15. apríl 2013 þar sem kynnt er átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar.

Bæjarráð felur Höllu Margréti Tryggvadóttur starfsmannastjóra að óska eftir þátttöku fyrir hönd Akureyrarbæjar í verkefninu.

Bæjarráð - 3413. fundur - 15.05.2014

Akureyrarbær fékk úthlutað 9 störfum vegna atvinnuátaks námsmanna.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð telur þetta jákvætt og verða störfin auglýst í vikunni ásamt öðrum átaksverkefnum Akureyrarbæjar.