Glerárgata 20 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020142

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 153. fundur - 27.02.2013

Erindi dagsett 13. febrúar 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Þorps ehf., kt. 420206-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Glerárgötu 20. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.

Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd - 155. fundur - 10.04.2013

Erindi dagsett 13. febrúar 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Þorps ehf, kt. 420206-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Glerárgötu 20, var grenndarkynnt frá 1. mars með athugasemdafresti til 29. mars 2013.
Engin barst athugasemd.

Skipulagsnefnd heimilar viðbyggingu við Glerárgötu 20 og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 450. fundur - 03.07.2013

Erindi dagsett 24. júní 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Þorps ehf., kt. 420206-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 20 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Þröst Sigurðsson.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 452. fundur - 17.07.2013

Erindi dagsett 24. júní 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Þorps ehf., kt. 420206-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 20 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Þröst Sigurðsson.
Innkomnar teikningar 11. júlí 2013
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 462. fundur - 25.09.2013

Erindi dagsett 23. september 2013 þar sem Arinbjörn Þórarinsson f.h. Þorps ehf., kt. 420206-2080, fellur frá byggingaráformum um viðbyggingu við Glerárgötu 20.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að fella niður samþykkt á byggingaráformunum.