Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

462. fundur 25. september 2013 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía Sigmundsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Goðanes 8-10 - umsókn um breytingar á innra skipulagi

Málsnúmer 2013090259Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2013 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Manna ehf., kt. 550601-3620, sækir um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í hluta 0115 í Goðanesi 8-10. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Þórsstígur 4 - umsókn um breytingar á norður- og miðsal

Málsnúmer 2012070009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2013 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Hölds ehf., kt. 651174-0239, sækir um breytingu á áður samþykktum teikningum af viðbyggingu og breytingum innanhúss í Þórsstíg 4. Innkomnar teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Glerárgata 20 - afturköllun á byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020142Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. september 2013 þar sem Arinbjörn Þórarinsson f.h. Þorps ehf., kt. 420206-2080, fellur frá byggingaráformum um viðbyggingu við Glerárgötu 20.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að fella niður samþykkt á byggingaráformunum.

Fundi slitið - kl. 13:30.