Hafnarstræti 98 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011080075

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 362. fundur - 31.08.2011

Erindi móttekið 23. ágúst 2011 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., 450711-1360, sækir um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á húsinu nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Söru Axelsdóttur dagsettar 15. júlí 2011. Innkomið samþykki frá Vinnueftirliti ríkisins 30. ágúst 2011.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra - 3. fundur - 08.09.2011

Skipulagsstjóri óskar eftir umsögn nefndarinnar á umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á húsinu nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Söru Axelsdóttur dags. 15. júlí 2011.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra telur fyrirliggjandi teikningar af Hafnarstræti 98 sem fela ekki í sér aðgengi fyrir alla inn í húsið, verslun svo og gistirými, óásættanlegar. Fyrirhuguð notkun hússins getur ekki átt að leiða það af sér að aðgengi fatlaðra að húsinu verði ekkert.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 369. fundur - 19.10.2011

Erindi móttekið 23. ágúst 2011 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., 450711-1360, sækir um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á húsinu nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Söru Axelsdóttur dagsettar 15. júlí 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. september 2011.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 370. fundur - 26.10.2011

Erindi móttekið 23. ágúst 2011 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., 450711-1360, sækir um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á húsinu nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Söru Axelsdóttur dagsettar 15. júlí 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. september og 25. október 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 370. fundur - 26.10.2011

Erindi dagsett 30. september 2011 þar sem Ari Hermann Oddsson sækir um að vera byggingarstjóri við endurbyggingu á Hafnarstræti 98.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 398. fundur - 23.05.2012

Erindi móttekið 23. ágúst 2011 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., 450711-1360, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Hafnarstræti 98. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Söru Axelsdóttur dagsettar 15. júlí 2011. Innkomnar nýjar teikningar 3. maí 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 421. fundur - 14.11.2012

Erindi móttekið 23. ágúst 2011 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., kt. 450711-1360, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Hafnarstræti 98. Innkomnar teikningar eftir Söru Axelsdóttur 31. október 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 427. fundur - 09.01.2013

Erindi móttekið 3. maí 2012 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., 450711-1360, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Hafnarstræti 98. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Söru Axelsdóttur. Innkomnar leiðréttar teikningar 20. desember 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.