Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

369. fundur 19. október 2011 kl. 13:00 - 13:50 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Daggarlundur 10 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011100021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. október 2011 þar sem Hólmfríður Guðnadóttir og Halldór Kristjánsson sækja um lóð nr. 10 við Daggarlund. Meðfylgjandi er staðfesting á greiðslugetu frá Byr hf.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Skipulags- og byggingarskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

2.Hafnarstræti 98 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011080075Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 23. ágúst 2011 þar sem Sara Axelsdóttir f.h. Akureyri Backpackers ehf., 450711-1360, sækir um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á húsinu nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Söru Axelsdóttur dagsettar 15. júlí 2011. Innkomnar nýjar teikningar 30. september 2011.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

3.Hafnarstræti 107 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011080011Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. október 2011 þar sem Helgi Snorrason sækir um að vera byggingarstjóri við smíði lyftustokks í Hafnarstræti 107.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Heiðartún 1 - umsókn um stækkun á lóð

Málsnúmer 2011100071Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. maí 2011 þar sem Særún Emma Stefánsdóttir og Sigvaldi Þorleifsson sækja um stækkun á lóðinni nr. 1 við Heiðartún.
Breytt deiliskipulag tók gildi þann 3. október 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Heiðartún 3 - umsókn um stækkun á lóð

Málsnúmer 2011100072Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. maí 2011 þar sem Sigurður Ólason og Áshildur Hlín Valtýsdóttir sækja um stækkun á lóðinni nr. 3 við Heiðartún.
Breytt deiliskipulag tók gildi þann 3. október 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Heiðartún 5 - umsókn um stækkun á lóð

Málsnúmer 2011100073Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. maí 2011 þar sem Fríða Stefánsdóttir f.h. Reisum byggingarfélags ehf., kt. 470809-0270, sækir um stækkun á lóðinni nr. 5 við Heiðartún.
Breytt deiliskipulag tók gildi þann 3. október 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:50.