Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra

3. fundur 08. september 2011 kl. 13:00 - 13:54 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Bergur Þorri Benjamínsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Jón Heiðar Jónsson
Starfsmenn
  • Leifur Kristján Þorsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Hafnarstræti 98 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011080075Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri óskar eftir umsögn nefndarinnar á umsókn um byggingarleyfi fyrir endurbyggingu á húsinu nr. 98 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Söru Axelsdóttur dags. 15. júlí 2011.

Samstarfsnefnd um ferlimál fatlaðra telur fyrirliggjandi teikningar af Hafnarstræti 98 sem fela ekki í sér aðgengi fyrir alla inn í húsið, verslun svo og gistirými, óásættanlegar. Fyrirhuguð notkun hússins getur ekki átt að leiða það af sér að aðgengi fatlaðra að húsinu verði ekkert.

Fundi slitið - kl. 13:54.