Þrastarlundur 3-5 - umsókn um byggingarleyfi og breytingar

Málsnúmer 2011030150

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 342. fundur - 30.03.2011

Erindi dagsett 22. mars 2011 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, og Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, kt. 510211-0140, sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum og viðbyggingu við hús nr. 3-5 við Þrastarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur dagsettar 14.03.2011.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 346. fundur - 04.05.2011

Erindi dagsett 22. mars 2011 þar sem Ríkissjóður Íslands, kt. 540269-6459, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum og viðbyggingu við hús nr. 3-5 við Þrastarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur dagsettar 14. mars 2011. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu. Innkomnar nýjar teikningar 8. apríl 2011. Innkomnar nýjar teikningar 2. maí 2011.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 357. fundur - 27.07.2011

Erindi dagsett 20. júlí 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um leyfi til breytinga á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 357. fundur - 27.07.2011

Erindi dagsett 20. júlí 2011 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að vera byggingarstjóri við viðbyggingu að Þrastarlundi 3-5. Umboð hefur Sigurður Gunnarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 441. fundur - 24.04.2013

Innkomnar teikningar 23. apríl 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, og Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, kt. 510211-0140, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af húsinu nr. 3-5 við Þrastarlund.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 461. fundur - 18.09.2013

Innkomnar teikningar 23. apríl 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, og Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, kt. 510211-0140, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsinu nr. 3-5 við Þrastarlund.
Innkomnar teikningar 16. september 2013.

Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.