Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

357. fundur 27. júlí 2011 kl. 13:00 - 14:25 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Kristján Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Hamarstígur 28 - kvörtun vegna ófrágenginnar fasteignar

Málsnúmer 2011070048Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2011 þar sem Hjördís Blöndal eigandi Löngumýrar 1 leggur fram kvörtun um frágang á húsi nágranna að Hamarstíg 28. Ekki er hægt að ganga fá lóðamörkum milli húsanna vegna þess að ólokið er frágangi á viðbyggingu að Hamarstíg 28. Meðfylgjandi eru nánari skýringar og ljósmynd.

Skipulagsstjóri mun senda eigendum Hamarstígs 28 bréf vegna fullnaðarfrágangs viðbyggingarinnar, sbr. gr. 61,5 í byggingarreglugerð 441/1998.

2.Síðubraut / Hlíðarfjallsbraut - umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð

Málsnúmer 2011070014Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2011 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð á horni Síðubrautar og Hlíðarfjallsvegar. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Þröst Sigurðsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Skálateigur 3-7 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN020092Vakta málsnúmer

Innkomin reyndarskráningartafla eftir Ivon S Cilia fyrir Skálateig 3-7, móttekin 4. júlí 2011.
Skipulagsstjóri samþykkir töfluna.

4.Hafnarstræti 107b - byggingarstjóri

Málsnúmer 2011060073Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. júlí 2011 þar sem Hólmsteinn Snædal sækir um að vera byggingarstjóri við breytingar að Hafnarstræti 107b.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Síðubraut / Hlíðarfjallsbraut - byggingarstjóri

Málsnúmer 2011070014Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2011 þar sem Helgi Snorrason sækir um að vera byggingarstjóri við byggingu spennistöðvar við gatnamót Síðubrautar og Hlíðarfjallsvegar.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Þrastarlundur 3-5 - umsókn um byggingarleyfi og breytingar

Málsnúmer 2011030150Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júlí 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um leyfi til breytinga á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Ljómatún 5 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN070090Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2011 þar sem Anna M Hauksdóttir f.h. Rakar ehf., kt. 510805-0110, sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu M Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

8.Óseyri 5 - umsókn um yfirferð raunteikninga fyrir eignaskiptasamning

Málsnúmer 2011030024Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. júlí 2011 þar sem Haraldur Árnason f.h. Hringbergs ehf., kt. 480607-0900, sækir um að eignarhlutum að Óseyri 5 verði breytt í 3 hluta í stað 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

9.Austurbyggð 17 - raðhúsaíbúðir A-F og G-L umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011070047Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. júlí 2011 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um leyfi til að skipta út þakklæðningu og setja upp ný skyggni og handrið úr stáli á raðhúsíbúðum A-F og G-L við Austurbyggð 17. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Ágúst Hafsteinsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

10.Spónsgerði 2 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011040036Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júní 2011 þar sem Heiðar Rögnvaldsson sækir um að vera byggingarstjóri við viðbyggingu að Spónsgerði 2.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

11.Ósvör 6 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011060009Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júní 2011 þar sem Heiðar Rögnvaldsson sækir um að vera byggingarstjóri við nýbyggingu að Ósvör 6.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

12.Furuvellir 13 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í rými 02 0102

Málsnúmer 2011070083Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. júlí 2011 þar sem Huld Ringsted f.h. Fiskistjörnunnar ehf., kt. 450309-0600, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í rými 02 0102 að Furuvöllum 13. Meðfylgjandi eru teikningar frá VN áritaðar af Árna Gunnari Kristjánssyni og samþykki eigenda hússins. Innkomin umsögn frá Vinnueftirlitinu 27. júlí 2011.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

13.Þrastarlundur 3-5 - byggingarstjóri

Málsnúmer 2011030150Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. júlí 2011 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að vera byggingarstjóri við viðbyggingu að Þrastarlundi 3-5. Umboð hefur Sigurður Gunnarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:25.