Íþróttaráð

81. fundur 26. október 2010 kl. 08:15 - 09:00 Fundarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
Starfsmenn
  • Kristinn H. Svanbergsson fundarritari
Dagskrá

1.Afreks- og styrktarsjóður - skipun stjórnar

Málsnúmer 2010100140Vakta málsnúmer

Skipun íþróttaráðs í stjórn Afreks- og styrktarsjóðs.

Íþróttaráð skipar Erling Kristjánsson sem fulltrúa minnihlutans í stjórnina.

Formaður íþróttaráðs er sjálfskipaður sem formaður samkvæmt samþykkt um Afreks- og styrktarsjóð.

2.Bílaklúbbur Akureyrar - akstursíþróttasvæði

Málsnúmer 2008100034Vakta málsnúmer

Lögð fyrir drög að uppbyggingar- og rekstrarsamningi við Bílaklúbb Akureyrar.

Meirihluti íþróttaráðs samþykkir fyrirliggjandi drög fyrir sitt leyti.

Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista situr hjá við afgreiðslu málsins og óskar bókað:

Ég er hlynnt uppbyggingu Bílaklúbbs Akureyrar og íþróttafélaga almennt í bænum og tel að bæjarfélagið eigi að vinna með íþróttafélögum að uppbyggingu góðrar aðstöðu fyrir allar íþróttagreinar. En á tímum efnahagsþrenginga og á meðan bæjarfélagið stendur frammi fyrir gríðarlegum niðurskurði og samdrætti þá tel ég ekki rétt að ganga frá samningi sem þessum að svo stöddu.

Fundi slitið - kl. 09:00.