Félagsmálaráð

1182. fundur 26. mars 2014 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Þráinn Brjánsson fundarritari
Dagskrá

1.Lautin - athvarf fyrir fólk með geðraskanir

Málsnúmer 2012010115Vakta málsnúmer

Staða mála kynnt vegna óska Akureyrarbæjar um viðræður við velferðarráðuneytið um rekstrarstyrk vegna þjónustunnar sem veitt er í Lautinni.

2.Lengd viðvera fatlaðra barna og ungmenna

Málsnúmer 2013110193Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi dags. 18. mars 2014 frá Önnu Einarsdóttur forstöðumanni skóla- og skammtímavistunar og Margréti Ríkarðsdóttur forstöðumanni Skógarlundar um heimild til að veita fötluðum nemendum Verkmenntaskólans, sem eru í lengdri viðveru, þjónustu í verkfalli framhaldsskólakennara.

Félagsmálaráð harmar þá ákvörðun undanþágunefndar í verkfalli félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum að koma ekki til móts við þarfir mikið fatlaðra nemenda. Félagsmálaráð felur starfsmönnum fjölskyldu- og búsetudeildar að finna leiðir í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri og foreldra ungmenna að mæta brýnum þörfum þeirra á meðan verkfall varir.

3.Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir

Málsnúmer 2014010041Vakta málsnúmer

Selma Heimisdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjun og afgreiðsla hennar er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

4.Endurbætur á vakt og skrifstofurými

Málsnúmer 2014030270Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra dags. 24. mars 2014 varðandi endurbætur/breytingar á lyfjaherbergi, vakt og skrifstofurými.

Félagsmálaráð heimilar fyrir sitt leyti að leitað verði til Fasteigna Akureyrarbæjar með hönnun og kostnaðarútreikninga á fyrrnefndum breytingum núverandi húsnæðis í samráði við framkvæmdastjóra ÖA.

5.Öldrunarfræðafélag Íslands - aðalfundur 2014

Málsnúmer 2014030254Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 10. mars 2014 frá Öldrunarfræðafélagi Íslands þar sem boðað er til aðalfundar félagsins fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 17:00 í Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, Reykjavík.

6.Endurbætur í aðaleldhúsi ÖA

Málsnúmer 2014030072Vakta málsnúmer

Gera þarf endurbætur á aðstöðu til djúpsteikinga í aðaleldhúsi og er leitað heimildar félagsmálaráðs til að sækja um endurbæturnar til Fasteigna Akureyrarbæjar.

Félagsmálaráð heimilar fyrir sitt leyti að leitað verði til Fasteigna Akureyrarbæjar með hönnun og kostnaðarútreikninga á fyrrnefndum breytingum núverandi húsnæðis í samráði við framkvæmdastjóra ÖA.

Dagbjört Elín Pálsdóttir áheyrnarfulltrúi S-lista vék af fundi kl. 14:45 eftir lok umræðu um 6. lið.

7.Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna

Málsnúmer 2013120021Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA kynnti stöðu mála varðandi endurskoðun á samningi um þjónustu sérfræðilækna og vaktlækna við ÖA.
Gerð grein fyrir stöðunni í samningaviðræðum SAk og ÖA.

Fundi slitið - kl. 16:00.