Félagsmálaráð

1148. fundur 22. ágúst 2012 kl. 14:00 - 16:49 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bryndís Dagbjartsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Starfsáætlun félagsmálaráðs 2010-2014

Málsnúmer 2011010043Vakta málsnúmer

Verkefni í starfsáætlun rædd og farið yfir aðgerðarlista vegna þeirra.

Frestað til næsta fundar.

2.Heimahjúkrun - reglur 2012

Málsnúmer 2012080066Vakta málsnúmer

Frestað til næsta fundar.

3.Heimahjúkrun - nýr forstöðumaður 2012

Málsnúmer 2012080067Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti ráðningu Ingu Dagnýjar Eydal í starf forstöðumanns heimahjúkrunar.

Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með ráðninguna.

4.Fagráð um fjölskylduvernd

Málsnúmer 2012030029Vakta málsnúmer

Lögð var fram til kynningar úttekt á vinnulagi fagráðs um fjölskylduvernd sem Bryndís Elfa Valdimarsdóttir vann fyrir Heilsugæslustöðina og fjölskyldudeild.
Bryndís Elfa mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti úttektina.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

5.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2012080049Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar listi yfir stöðuna á biðlistum eftir leiguhúsnæði hjá Akureyrarbæ 31. júlí 2012.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

6.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lögðu fram til kynningar leiðbeinandi reglur Velferðarráðuneytisins um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA).
Einnig lagt fram bréf frá Innanríkisráðuneytinu/Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 28. júní 2012 um úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði vegna NPA árið 2012.

Félagsmálaráð samþykkir að taka þátt í innleiðingu NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð) og felur starfsmönnum búsetudeildar og fjölskyldudeildar að semja drög að reglum um þjónustuna og leggja fyrir ráðið.

Dagur Fannar Dagsson L-lista og Sif Sigurðardóttir A-lista viku af fundi kl. 15:57.

7.Íbúðakjarni - nýbygging 2012

Málsnúmer 2011110037Vakta málsnúmer

Staðsetning lóðar fyrir sex íbúða nýbyggingu í Giljahverfi fyrir fatlað fólk. Fjórar hugmyndir lagðar fram.

Félagsmálaráð styður eindregið hugmynd nr. 4 í gögnum sem lögð voru fram á fundinum.

Fundi slitið - kl. 16:49.