Bæjarstjórn

3419. fundur 19. september 2017 kl. 16:00 - 17:06 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Gunnar Gíslason 2. varaforseti
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Preben Jón Pétursson
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Víðir Benediktsson
  • Baldvin Valdemarsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Í upphafi fundar leitaði 2. varaforseti afbrigða til að skipa Baldvin Valdemarsson D-lista fundarstjóra til vara á þessum bæjarstjórnarfundi og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.
Því næst leitaði 2. varaforseti afbrigða til að taka af dagskrá 2. lið í útsendri dagskrá, verklagsreglur vegna stöðuleyfis gáma og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.
Ólína Freysteinsdóttir S-lista mætti í forföllum Sigríðar Huldar Jónsdóttur.
Víðir Benediktsson L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.

1.Goðanes 12 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2017060143Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 13. september 2017:

Erindi dagsett 21. júní 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Þríforks ehf., kt. 650713-0790, sækir um heimild til að deiliskipuleggja breytingar á lóð nr. 12 við Goðanes.

1) Stækka byggingarreit en nýtingarhlutfall verður það sama, þ.e. 0,3 en byggð verði 3 hús á lóðinni.

2) Fjölga innkeyrslum inn á lóðina og færa þær eldri til en alls verða því 4 innkeyrslur inn á lóðina í stað tveggja.

Erindið var grenndarkynnt frá 11. ágúst til 8. september 2017.

Engin athugasemd barst.

Fyrirspurn barst frá Prima lögmönnum ehf. f.h. Akurbergs ehf. dagsett 28. ágúst 2017 í kjölfar grenndarkynningar vegna höfnunar skipulagsráðs á beiðni um deiliskipulagsbreytingu fyrir Goðanes 14 þegar lóðinni var úthlutað.



Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og sviðsstjóra skipulagssviðs falið að annast gildistöku hennar samkvæmt 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010 með síðari breytingum.



Skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulagssviðs að svara fyrirspurn Prima lögmanna ehf. í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2017

Málsnúmer 2017080144Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 14. september 2017:

Lagt fram óendurskoðað árshlutauppgjör janúar - júní 2017.

Aðalsteinn Þór Sigurðsson og Hólmgrímur Bjarnason endurskoðendur hjá Deloitt ehf mættu á fundinn og fóru yfir uppgjörið.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð vísar óendurskoðuðu árshlutauppgjöri janúar - júní 2017 til umræðu í bæjarstjórn.
Almennar umræður.

3.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum síðastliðnar vikur.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:


Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 7. og 14. september 2017
Bæjarráð 7. og 14. september 2017
Frístundaráð 31. ágúst og 7. september 2017
Fræðsluráð 4. september 2017
Skipulagsráð 13. september 2017
Stjórn Akureyrarstofu 7. september 2017
Umhverfis- og mannvirkjaráð 1., 8. og 15. september 2017
Velferðarráð 6. september 2017

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar / www.akureyri.is /
Stjórnkerfið / Fundargerðir

Fundi slitið - kl. 17:06.