Bæjarráð

3465. fundur 16. júlí 2015 kl. 08:30 - 12:12 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Dagskrá
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.

1.Slökkvilið Akureyrar - framtíð sjúkraflutninga

Málsnúmer 2015070071Vakta málsnúmer

Umræður um sjúkraflutninga og framtíðarskipulag hjá Slökkviliði Akureyrar.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri, Anton Berg Carrasco trúnaðarmaður starfsmanna SA, Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Karl Guðmundsson verkefnastjóri mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 10:50

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019

Málsnúmer 2015040196Vakta málsnúmer

Lagðar fram forsendur vegna fjárhagsáætlunar 2016.
Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðar forsendur.

3.Fjölskyldudeild - félagsþjónusta

Málsnúmer 2015060006Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð kjarasamninganefnd dagsett 13. júlí 2015:
2. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 3. júní 2015.
Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram minnisblað dagsett 29. maí 2015 um stöðu forstöðumanns í félagsþjónustu.
Velferðarráð samþykkir skipulagsbreytinguna og vísar málinu áfram til umfjöllunar í kjarasamninganefnd.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns félagsþjónustu á fjölskyldudeild verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv. reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar og felur velferðarráði að leita leiða til að fjármagna kostnaðarauka innan málaflokksins.

4.Starfsmannaþjónusta - starf forstöðumanns

Málsnúmer 2015070060Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 13. júlí 2015:
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnnti tillögu að breytingu á skipuriti starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns hjá starfsmannaþjónustu verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv. reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar og felur starfsmannastjóra að leita leiða til að fjármagna kostnaðarauka innan málaflokksins.

Fundi slitið - kl. 12:12.