Starfsmannaþjónusta, starf forstöðumanns

Málsnúmer 2015070060

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 4. fundur - 13.07.2015

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnnti tillögu að breytingu á skipuriti starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns hjá starfsmannaþjónustu verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.

Bæjarráð - 3465. fundur - 16.07.2015

2. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 13. júlí 2015:
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnnti tillögu að breytingu á skipuriti starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns hjá starfsmannaþjónustu verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv. reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar og felur starfsmannastjóra að leita leiða til að fjármagna kostnaðarauka innan málaflokksins.