Bæjarráð

3321. fundur 31. maí 2012 kl. 09:00 - 10:37 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista boðaði forföll sín og varamanns á fundinn.

1.Svefn og heilsa ehf - stefna

Málsnúmer 2012050013Vakta málsnúmer

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið og kynnti stefnu á hendur Akureyrarbæ.

2.Ísmet ehf - stefna

Málsnúmer 2012050014Vakta málsnúmer

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið og kynnti stefnu á hendur Akureyrarbæ.

3.Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar - stjórnsýslukæra - Ólafur Jónsson

Málsnúmer 2012030151Vakta málsnúmer

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið og kynnti úrskurð UUA vegna kæru Ólafs Jónssonar.
Úrskurðarnefnd vísaði málinu frá.

Ólafur Jónsson D-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

Ég vil árétta að ég sendi ekki stjórnsýslukæruna til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (UUA), enda var ég ekki að kæra afgreiðslu skipulagstillögu að deiliskipulagi Dalsbrautar. Ég vildi einungis fá úr því skorið hvort að bæjarstjórn Akureyrar hefði staðið eðlilega og málefnalega að málum þegar ég var álitinn vanhæfur í bæjarstjórn til að taka þátt í umræðu og greiða atkvæði um tillöguna vegna mjög svo almennra athugasemda við tillöguna frá eiginkonu minni og snéru ekki að húseign okkar. Ég sendi því innanríkisráðuneytinu erindið sem ákvað að senda það til UUA og UUA vísar málinu síðan frá þar sem nefndin telur að það sé ekki í hennar verkahring að úrskurða um þetta tiltekna atriði. Ég tel brýnt að það komi fram efnisleg afstaða ráðuneytisins í málinu, ekki síst fyrir bæjarstjórn Akureyrar. Ég lít því svo á að allir bæjarfulltrúar ættu að geta sameinast um það að vinna að því að botn fáist í málið.

Meirihluti bæjarráðs (OHH, GKA, HBR og HJT) lítur svo á að UUA hafi tekið afstöðu til kærunnar og því er ekki ástæða til að fá álit innanríkisráðuneytisins því fyrir liggur endanleg niðurstaða í málinu.

4.Geðverndarfélag Akureyrar - umsókn um styrk til reksturs þjónustumiðstöðvar

Málsnúmer 2012050165Vakta málsnúmer

Erindi dags. 18. maí 2012 frá Brynjólfi Ingvarssyni f.h. Geðverndarfélags Akureyrar þar sem farið er fram á það við bæjarstjórn Akureyrar, að tekin verði til athugunar umsókn um styrk til reksturs þjónustumiðstöðvar félagsins.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu, en vísar því til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2013.

5.Styrktarsjóður EBÍ 2012

Málsnúmer 2012050185Vakta málsnúmer

Erindi dags. 22. maí 2012 frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands varðandi umsóknir í styrktarsjóð EBÍ 2012.

Bæjarráð hvetur nefndir og deildir bæjarins til að skoða verkefni sem falla undir reglur sjóðsins og senda tillögur til bæjarstjóra fyrir 1. júlí nk.

6.Félagsstofnun stúdenta - ársreikningur 2011

Málsnúmer 2012050203Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri fyrir árið 2011.

7.Bæjarstjórn Akureyrar - hlutverk áheyrnarfulltrúa í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Sameiginlegur skilningur á hlutverki áheyrnarfulltrúa í nefndum skv. nýjum sveitarstjórnarlögum.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð telur rétt að nefndir fari eftir túlkun innanríkisráðuneytisins, sem kemur fram í tölvupósti frá lögmanni ráðuneytisins til bæjarlögmanns 1. mars 2012, á rétti áheyrnarfulltrúa til þátttöku á fundum.

Fundi slitið - kl. 10:37.