Bæjarráð

3640. fundur 29. maí 2019 kl. 08:15 - 09:47 Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir
Dagskrá
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og varamaður hennar boðuðu forföll.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023 - fjárhagsrammi

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsramma með 4 samhljóða atkvæðum. Fjárhagsramminn miðast við að rekstur A-hluta sé í jafnvægi en gert er ráð fyrir hagræðingarkröfu upp á 400 milljónir sem bæjarstjórn mun útfæra ásamt bæjarstjóra.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki

Málsnúmer 2018050147Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 4.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka 4 með rekstrarútgjöld að upphæð 65,6 milljónir króna og fjárfestingar að upphæð 122,9 milljónir króna, með 4 samhljóða atkvæðum, og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Fundi slitið - kl. 09:47.