Bæjarráð

3540. fundur 19. janúar 2017 kl. 08:30 - 10:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Gunnar Gíslason fundarstjóri
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Preben Jón Pétursson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Dagbjört Elín Pálsdóttir S-lista mætti í forföllum Sigríðar Huldar Jónsdóttur.
Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti í forföllum Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.

Gunnar Gíslason D-lista stjórnaði fundi í fjarveru formanns og varaformanns bæjarráðs.

1.Skíðalyfta í Hlíðarfjall

Málsnúmer 2016030107Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju. Áður á dagskrá bæjarráðs 8. desember 2016 en þá samþykkti bæjarráð að fela fjármálastjóra, forstöðumanni íþróttamála og forstöðumanni skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli að vinna að frekari útfærslu á kostnaðaráætlun og vinna drög að samningi við Vini Hlíðarfjalls um kaup og uppsetningu á lyftu.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum. Bæjarráð vísar málinu til frístundaráðs til umfjöllunar þegar frekari gögn liggja fyrir.

Málið verður tekið fyrir aftur á fundi bæjarráðs 2. febrúar nk.

2.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2016

Málsnúmer 2016040185Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til nóvember 2016.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Menningarfélag Akureyrar - endurnýjun samninga MH, LA og SN

Málsnúmer 2016120092Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsett 12. janúar 2017:

Farið yfir drög að samningi Akureyrarbæjar og Menningarfélags Akureyrar, f.h. Menningarfélagsins Hofs, Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn fyrir sitt leyti. Vegna ákvæða um árangurstengt framlag og þátttöku í rekstrarkostnaði almenningssalerna Hofs yfir sumartímann þarf samningurinn staðfestingar bæjarráðs við.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu og vísar samningnum aftur til stjórnar Akureyrarstofu og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.

Bæjarráð samþykkir að taka málið aftur fyrir 9. febrúar nk. og óskar eftir að formaður stjórnar MAk, formaður stjórnar Akureyrarstofu og sviðsstjóri samfélagssviðs mæti á þann fund.

4.Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð

Málsnúmer 2016100117Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 12. janúar 2017. Fundargerðin er í 3 liðum.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til umhverfis- og mannvirkjasviðs.

Fundi slitið - kl. 10:40.