Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

539. fundur 07. maí 2015 kl. 13:00 - 14:20 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Glerárgata 36 - stöðuleyfi

Málsnúmer 2013060155Vakta málsnúmer

Þann 27. febrúar 2015 sótti Sigurður Einarsson f.h. Bílasölunnar Bílaríkis ehf., kt. 420190-2209, um endurnýjun á stöðuleyfi/skammtímaleyfi fyrir sumarhúsi á lóð nr. 36 við Glerárgötu.

Skipulagsstjóri hafnaði erindinu 19. mars sl. þar sem rökstuðningur og samþykki lóðarhafa fyrir staðsetningunni höfðu ekki borist.
Skipulagsstjóri fer fram á að sumarhúsið verði fjarlægt af lóðinni og gefur 7 daga frest frá dagsetningu þessa bréfs til að fjarlægja húsið.

2.Hafnarstræti - sölu- og veitingaskúr

Málsnúmer 2013060005Vakta málsnúmer

Erindi frá mars 2014 þar sem Birgir Freyr Sumarliðason f.h. Ares ehf., kt. 470612-0530, sótti um stöðuleyfi fyrir sölu- og veitingaskúr í Skátagili norðan Hafnarstrætis 101.

Erindið var samþykkt til eins árs og nú er búið að senda út ítrekun fyrir stöðuleyfinu sem hefur ekki verið svarað.
Skipulagsstjóri fer fram á að skúrinn verði fjarlægður.

Gefin er 7 daga frestur frá dagsetningu þessa bréfs til að fjarlægja skúrinn.

3.Huldugil 29 - umsókn um byggingarleyfi fyrir smáhýsi

Málsnúmer 2015050027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. maí 2015 þar sem Bjarni Víðir Rúnarsson sækir um byggingarleyfi fyrir smáhýsi á lóð nr. 28 við Huldugil. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Krossanes 7 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2015030195Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. mars 2015 þar sem Hjalti H. Hjaltason f.h. Sláturfélags Suðurlands, kt. 600269-2089, sækir um lóð nr. 7 við Krossanes. Meðfylgjandi er ársskýrsla Sláturfélags Suðurlands svf.

Einnig fylgir bókun Hafnastjórnar Norðurlands frá 11. mars 2015, sem gerir ekki athugasemd við að lóðinni verði úthlutað til fyrirtækisins, enda er að hluta til um hafnsækna starfsemi að ræða.
Innkomin tölvupóstur dagsettur 28. apríl 2015 frá umsækanda lóðarinnar þar sem tilkynnt er að tekin hefur verið ákvörðun um að draga umsóknina til baka að sinni vegna óvissu sem nú ríkir í efnahagsmálum vegna kjaradeilna.

5.Undirhlíð 3 - umsókn um fjarskiptaloftnet á þaki

Málsnúmer 2015040075Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. apríl 2015 þar Hjörtur Líndal f.h. Nova ehf., 531205-0810, sækir um að setja fjarskiptabúnað/loftnet ofan á hús nr. 3 við Undirhlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Lúðvík D. Björnssson. Innkomin tölvupóstu frá Isavia, dagsettur 6. maí 2015, þar sem ekki er gerð athugasemd við staðsetningu mastursins.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Njarðarnes 3-7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsi

Málsnúmer 2015040068Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. apríl 2015 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Trésmiðjunar Barkar ehf., kt. 630186-1619, sækir um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði á lóðinni nr. 3-7 við Njarðarnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 30. apríl 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Sjávargata 4, Oddeyrartangi 149132 Bústólpi - breytingar á innra skipulagi

Málsnúmer 2013070029Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. apríl 2015 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Bústólpa ehf., kt. 541299-3009, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 4 við Sjávargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Fjölnisgata 6 - umsókn um breytingar og viðbyggingu

Málsnúmer 2015030269Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2015 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Bjarkarness ehf., kt. 671107-0710, sækir um breytingar á þaki húss og viðbyggingu við hús nr. 6c við Fjölnisgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar teikningar 5. maí 2015.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

9.Aðalstræti 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013020095Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. mars 2015 þar sem Stefán Örn Stefánsson f.h. Minjaverndar hf., 700485-0139, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Aðalstræti 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Stefán Örn Stefánsson. Innkomnar teikningar 29. apríl 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

10.Ásatún 42 - byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi

Málsnúmer 2015050004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. maí 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Ásatúns ehf., kt. 410914-1660, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingunni nr. 42 við Ásatún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

11.Gata sólarinnar 2 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014070003Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júní 2014 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Úrbótamanna ehf., kt. 410683-0599, sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 2 við Götu sólarinnar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynjar Einarsson. Innkomnar teikningar 20. apríl 2015.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:20.