Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

436. fundur 13. mars 2013 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson rekstrarstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Austurvegur 46 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030039Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. mars 2013 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Sigmars J. Friðbjörnssonar sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð númer 46 við Austurveg í Hrísey.
Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Birgir Ágústsson.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.1.3. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

 

 

2.Hafnarstræti 94 - umsókn um byggingarleyfi fyrir þaki

Málsnúmer BN100264Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. mars 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Gersemi Þrastar ehf., kt. 520556-0289, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á áður samþykktum teikningum af Hafnarstræti 94. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Lambi fjallaskáli, Glerárdal - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030061Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Ferðafélags Akureyrar, kt. 670574-0249, sækir um byggingarleyfi fyrir "Lamba", fjallaskála á Glerárdal. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Laxagata 3b - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030078Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2013 þar sem Jón Steinþórsson sækir um leyfi til að breyta gluggum á Laxagötu 3b. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í breytinguna en frestar erindinu og óskar eftir uppfærðum aðaluppdætti. 

5.Ósvör 2a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013010280Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2013 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Árness ehf., kt. 680803-2770, sækir um byggingarleyfi á lóð nr. 2a við Ósvör. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Einnig er óskað eftir undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður h.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Innkomnar teikningar 21. febrúar og 11. mars 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Tjarnartún 27 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012060160Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Fjölnis ehf., kt. 530289-2069, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Tjarnartúni 27. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Kjarnagata 29 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN060292Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi númer 29 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1. í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

8.Kjarnagata 31 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030066Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi númer 31 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, liður c.
2. Gr. 6.4.3. Dyr innanhúss, svala- og garðdyr.
3. Gr. 6.4.4. Gangar og anddyri.
4. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
5. Gr. 6.7.10. Baðherbergi og snyrtingar.
6. Gr. 13.2.3. Útreikningur heildarleiðnitaps.
7. Gr. 13.3.1. Almennt um leiðnitap og U-gildi byggingarhluta.
8. Gr. 13.3.2. Hámarks U-gildi - ný mannvirki og viðbyggingar.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

9.Oddeyrargata 32 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013030060Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2013 þar sem Þorkell Ásgeir Jóhannesson sækir um leyfi til að endurnýja lagnir, einangrun og fleira í Oddeyrargötu 32. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

10.Viðurkenning iðnmeistara

Málsnúmer 2013030097Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. mars 2013 þar sem Skúli Sigurðsson sækir um staðbundna löggildingu í lögsagnarumdæmi Akureyrarkaupstaðar sem stálvirkjameistari. Meðfylgjandi er afrit af meistarabréfi og verkefnaskrá frá byggingarfulltrúa Reykjavíkur sem sýnir að hann hafi að staðaldri haft umsjón með og borið ábyrgð á byggingarframkvæmdum í a.m.k. þrjú ár eftir viðurkenningu í umdæmi hans.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.