Viðurkenning iðnmeistara

Málsnúmer 2013030097

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 436. fundur - 13.03.2013

Erindi dagsett 13. mars 2013 þar sem Skúli Sigurðsson sækir um staðbundna löggildingu í lögsagnarumdæmi Akureyrarkaupstaðar sem stálvirkjameistari. Meðfylgjandi er afrit af meistarabréfi og verkefnaskrá frá byggingarfulltrúa Reykjavíkur sem sýnir að hann hafi að staðaldri haft umsjón með og borið ábyrgð á byggingarframkvæmdum í a.m.k. þrjú ár eftir viðurkenningu í umdæmi hans.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.