Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

374. fundur 23. nóvember 2011 kl. 13:00 - 15:10 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Gamli barnaskóli Hrísey - umsókn um leyfi til að breyta í íbúðarhús

Málsnúmer 2011110106Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2011 þar sem Þorleifur Eggertsson f.h. Norðan Báls, kt. 640205-0590, sækir um að breyta gamla barnaskólanum í Hrísey í einbýlishús. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Þorleif Eggertsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Hlíðarfjallsvegur 7 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011110074Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. nóvember 2011 þar sem Sigurður Ágústsson f.h. Bílaklúbbs Akureyrar, kt. 660280-0149, sækir um stöðuleyfi fyrir þjónustuhús við ökugerði sem staðsett er á lóð BA við Hlíðarfjallsveg 7. Meðfylgjandi eru afstöðumyndir.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu þar sem aðaluppdrættir liggja ekki fyrir.

3.Hlíðarfjallsvegur 7-13 - umsókn um bráðabirgða ökugerði

Málsnúmer 2011050048Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. nóvember 2011 þar sem Sigurður Ágústsson f.h. Bílaklúbbs Akureyrar, kt. 660280-0149, sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af ökugerði sem staðsett er á lóð BA við Hlíðarfjallsveg 11. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

4.Reykjasíða 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2011110079Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. nóvember 2011 þar sem Finnur Dagsson, Sóley Guðjónsdóttir og Halldór Guðbjörnsson sækja um breytingar á gluggum í kjallara á norð-austurhlið húss síns að Reykjasíðu 8. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Finn Dagsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

5.Skólastígur 4 - umsókn um leyfi til breytinga

Málsnúmer 2011100102Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. nóvember 2011 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Fasteigna Akureyrar, kt. 710501-2380, sækir um byggingarleyfi fyrir nýjum tröppum milli 1. hæðar og geymslu í kjallara íþróttahúss. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Skútagil 5 - umsókn um leyfi fyrir þakrými

Málsnúmer 2011110114Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. nóvember 2011 þar sem Haraldur Árnason f.h. Stefáns Austfjörð og Guðrúnar Óskar Sigurvinsdóttur leggur inn fyrirspurn um hvort leyfi fáist til að innrétta geymslu í rishæð íbúðar sinnar að Skútagili 5. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið.

7.Sporatún 10-12 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN060271Vakta málsnúmer

Innkominar nýjar reyndarteikningar 18. nóvember 2011 af Sporatúni 10-12 fyrir lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

8.Ægisnes 2 - umsókn um bráðabirgðaleyfi fyrir skrifstofugámi

Málsnúmer 2011110080Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. nóvember 2011 þar sem Ingi Friðbjörnsson f.h. Norðurbiks ehf., kt. 410704-2260, sækir um leyfi til að stækka bráðabirgðaaðstöðu að Ægisnesi 2 með því að setja skrifstofugám ofan á gám sem fyrir er með starfsmannaaðstöðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

9.Lögbergsgata 7 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á sólstofu

Málsnúmer 2011110105Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2011 þar sem Guðmundur Víðir Gunnlaugsson og Margrét Þorsteinsdóttir leggja inn fyrirspurn um hvort leyfi fáist fyrir breytingu á notkun sólstofu að Lögbergsgötu 7 í íbúðarými.

Skipulagsstjóri getur ekki orðið við ósk um breytta notkun á sólstofunni í íbúarrými þar sem um samþykkta frístundaaðstöðu er að ræða.

10.Dalsbraut 1 L-M 147479 - umsókn um malbikun plans

Málsnúmer 2011110122Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. nóvember 2011 þar sem Valdimar Hafsteinsson f.h. Steingerði ehf., kt. 561107-0680, óskar eftir leyfi til að lagfæra, setja niðurföll og malbika plan framan við Dalsbraut 1 L-M 147479.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við erindið en bendir á að samþykki húsfélagsins þarf að liggja fyrir áður en farið verður í framkvæmdir.

11.Viðurkenning iðnmeistara - Albert Guðmundsson

Málsnúmer 2011110113Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. nóvember 2011 þar sem Albert Guðmundsson óskar eftir staðbundinni löggildingu sem veggfóðrara- og dúklagningameistari á Akureyri. Meðfylgjandi er afrit af meistarabréfi og úrtak úr færslubók.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

12.Ljómatún 3 - byggingarstjóri

Málsnúmer BN080125Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2011 þar sem Timbra ehf., kt. 620199-3039, óskar eftir að Snæbjörn Sigurðsson taki við umboði byggingarstjóra af Gunnlaugi Ingólfssyni við Ljómatún 3.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

13.Pílutún 2-4 - byggingarstjóri

Málsnúmer BN060034Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2011 þar sem Timbra ehf., kt. 620199-3039, óskar eftir að Snæbjörn Sigurðsson taki við umboði byggingarstjóra af Gunnlaugi Ingólfssyni við Pílutún 2-4.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

14.Pílutún 6-10 - byggingarstjóri

Málsnúmer BN060035Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2011 þar sem Timbra ehf., kt. 620199-3039, óskar eftir að Snæbjörn Sigurðsson taki við umboði byggingarstjóra af Gunnlaugi Ingólfssyni við Pílutún 6-10.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

15.Fannagil 31-33 - byggingarstjóri

Málsnúmer BN030271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2011 þar sem Timbra ehf., kt. 620199-3039, óskar eftir að Snæbjörn Sigurðsson taki við umboði byggingarstjóra af Gunnlaugi Ingólfssyni við Fannagil 31-33.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

16.Hólsgerði 1 - umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2011080037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. nóvember 2011 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Vignis Kárasonar sækir um að byggja millibyggingu milli bílgeymslu og húss og nýtt þak á bílgeymslu að Hólsgerði 1. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 22. nóvember 2011.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 15:10.