Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

952. fundur 01. febrúar 2024 kl. 13:30 - 14:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Lækjarmói 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024011037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. janúar 2024 þar sem Hans Orri Kristjánsson fyrir hönd SS Byggis ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsum á lóð nr. 2-8 við Lækjarmóa.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Týsnes 2A og 2B - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022031211Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Þríforks ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir tveimur byggingum á lóð nr. 2 við Týsnes. Meðfylgjandi eru teikningar Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hafnarstræti 102 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022061239Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. nóvember 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. LF1 ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 102 við Hafnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar 30. janúar 2024 eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Hafnarstræti 99-101 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024011365Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. janúar 2024 þar sem Jón Davíð Ásgeirsson fyrir hönd KK bygg ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á 2. hæð mhl. 03 í byggingu nr. 99-101 við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:30.