Lækjarmói 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024011037

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 952. fundur - 01.02.2024

Erindi dagsett 18. janúar 2024 þar sem Hans Orri Kristjánsson fyrir hönd SS Byggis ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsum á lóð nr. 2-8 við Lækjarmóa.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 956. fundur - 29.02.2024

Erindi dagsett 18. janúar 2024 þar sem Hans Orri Kristjánsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsum á lóð nr. 2-8 við Lækjarmóa. Innkomnar nýjar teikningar 27. febrúar 2024 eftir Hans Orra Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.