Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

934. fundur 20. september 2023 kl. 11:30 - 12:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Þórunnarstræti 114A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023090764Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. september 2023 þar sem Ólafur Már Ólafsson sækir um breytta notkun íbúðar 0101 á lóð nr. 114 við Þórunnarstræti á Akureryri.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

2.Oddeyrarbót 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023090734Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. september 2023 þar sem Jóhann Einar Jónsson fyrir hönd Hvalaskoðun Akureyrar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á tveimur hæðum á lóð nr. 2 við Oddeyrarbót.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Eyjafjarðarbraut, Flugsafn Íslands - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023090724Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. september 2023 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Flugsafns Íslands sækir um byggingaráform og byggingarheimild á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Reynilundur 5 - tilkynningarskyld mannvirkjagerð undanþegin byggingarleyfi eða byggingarheimild

Málsnúmer 2023090814Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2023 þar sem Bjarni Reykjalín fyrir hönd Ingvars Þóroddssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi nr. 5 við Reynilund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Hafnarstræti 39 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2022121117Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. desember 2022 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd 603 ehf. sækir um að fjölga fasteignum í húsi nr. 39 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum úr tveimur í þrjár. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar nýjar teikningar 20. september 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 12:30.