Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

841. fundur 25. nóvember 2021 kl. 14:15 - 15:15 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Ystibær-Miðbær 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021091271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Unnar Sæmundsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð Ystabæjar-Miðbæjar 3 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomin ný gögn 23. nóvember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Sjafnarstígur 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2021110714Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. nóvember 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Oddfellowreglunnar á Akureyri sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 3 við Sjafnarstíg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

3.Margrétarhagi 24 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021111101Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. nóvember 2021 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Maríu Hólmfríðar Marinósdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 24 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Ráðhústorg 1 - umsókn um breytta notkun

Málsnúmer 2021111193Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. nóvember 2021 þar sem Gunnlaugur Jónasson fyrir hönd D7 ehf. sækir um breytta skráningu á íbúð 0201 við Ráðhústorg 1 úr íbúð í atvinnuhúsnæði til gistingar. Meðfylgjandi er samþykki eigenda í húsinu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 15:15.