Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

837. fundur 28. október 2021 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Aðalstræti 22 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun, snyrtistofa

Málsnúmer 2021091103Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. september 2021 þar sem Gísli Jón Kristinsson fyrir hönd Mörtu Volina sækir um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun í rými 0102 í húsi nr. 22 við Aðalstræti. Fyrirhugað er að opna snyrtistofu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Jón Kristinsson.

Innkomnar nýjar teikningar 22 október 2021.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Ystibær-Miðbær 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021091271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2021 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Þórhöllu Brynjarsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð Ystabæjar-Miðbæjar 3 í Hrísey. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hlíðargata 11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breyttu innra skipulagi

Málsnúmer 2021100478Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. október 2021 þar sem Brynhildur Sólveigardóttir fyrir hönd Sigmars Ólafssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og breytingu á innra skipulagi í rými 0102. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynhildi Sólveigardóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Furuvellir 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021101269Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. október 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd A441 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 7 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Suðurbyggð 15 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021101507Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. október 2021 þar sem Svanur Þór Brandsson fyrir hönd Hrafns Svavarssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 15 við Suðurbyggð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svan Þór Brandsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:45.