Fjölskyldan og Nína Tryggvadóttir

Laugardaginn 4. febrúar kl. 11-12 verður boðið upp á sérstaka fjölskylduleiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá yfirlitssýningu á verkum Nínu Tryggvadóttur, Litir, form og fólk.

Munurinn á hlutbundinni og abstrakt list Nínu verður m.a. skoðaður auk þess sem barnabækur hennar verða sérstaklega til umfjöllunar.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum Nínu.

Skráning á heida@listak.is.

Aðgangur er ókeypis.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan