Torfunefsbryggja – Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagsbreytingu miðbæjar Akureyrar.
Skipulagssvæðið nær til Torfunefsbryggju og nánasta umhverfis. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að bryggjan breikki um 5 m til suð-austurs frá gildandi deiliskipulagi.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 28. febrúar til 11. apríl 2018, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt hér fyrir neðan.

Torfunefsbryggja - tillaga að deiliskipulagsbreytingu


Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 11. apríl 2018 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.

28. febrúar 2018
Sviðsstjóri skipulagssviðs

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan