Tillaga að nýrri kirkju

Tillaga að nýrri kirkju í Grímsey
Tillaga að nýrri kirkju í Grímsey

Á sóknarnefndar- og íbúafundi í Grímsey þann 16. nóvember síðastliðinn kynnti Hjörleifur Stefánsson arkitekt frumdrög að nýrri kirkju í stað Miðgarðakirkju sem brann 21. september sl.

Það sem einkenndi Miðgarðakirkju var forkirkjan og turninn með toppmynduðu þaki en efri hluti hans var undir þrengra formi og umhverfis stallinn sem myndaðist á skilunum var handrið af renndum pílárum og á hornstoðunum fjórum voru litlir málmkrossar. Nýja kirkjan sem kynnt var á fundinum er með svipuðum turni.

Á íbúafundinum var auk þess kynnt hugmynd um að gera veggklæðningar nýrrar kirkju úr lerki/rekavið eins og var í gömlu kirkjunni. Einnig var lagt til að gera gólf kirkjunnar úr stuðlabergsflísum, að þakið verði lagt þakskífum úr stuðlabergssneiðum og altarið hannað úr bergstuðlum, þannig leitast við að tengja húsið náttúru eyjarinnar og sögu. Neðan við Miðgarða og víðar á vesturströnd eyjarinnar eru fallegir stuðlabergsklettar og þar má sjá lárétta stuðlastalla, sem minna helst á „kirkjugólfið" við Kirkjubæjarklaustur.

Við hönnun byggingarinnar þarf að horfa til byggingarreglugerðar og því þarf að bæta við rými til að uppfylla þær kröfur m.a. varðandi tækjabúnað, ræstiklefa, snyrtingar, aðgengi fatlaðra o.fl. Einnig er horft til þess að hægt verði að nýta nýja kirkju sem best m.a. með tilliti til annarra athafna en helgihalds.

Á fundinum var einróma samþykkt að halda áfram með verkefnið, fullvinna teikningarnar og gera kostnaðaráætlun.

Söfnun fyrir nýrri kirkju stendur yfir og þeim sem vilja leggja henni lið er bent á reikning Miðgarðakirkju, 565-04-250731, kt. 4602692539.

Hér að neðan má sjá myndasafn sem er framlag gesta og íbúa til minningar um Miðgarðakirkju sem brann.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan