Skipulagslýsing fyrir athafnasvæði við Hlíðarfjallsveg

Hafin er vinna við gerð deiliskipulags fyrir athafnasvæði við Hlíðarfjallsveg á Akureyri.

Skipulagssvæðið er merkt sem reitur AT16 í gildandi aðalskipulagi, sjá hér. Svæðið liggur sunnan Hlíðarfjallsvegar og er um 6,5 ha að stærð. Það afmarkast af óbyggðum svæðum og græna treflinum SL7 í gildandi aðalskipulagi.

Markmiðið með deiliskipulaginu er að skapa svigrúm fyrir uppbyggingu gagnavers og annarrar hreinlegrar og umhverfisvænnar atvinnustarfsemi, ásamt því að skoða umferðarleiðir og tengingar inn á skipulagssvæðið. Athafnalóðir verða afmarkaðar og settir skilmálar um uppbyggingu á svæðinu.

Skipulags- og matslýsing fyrir verkefnið er aðgengileg hér.

Athugasemdum og ábendingum, þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram, má skila með tölvupósti á skipulagssvid@akureyri.is eða bréfpósti í Ráðhús Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akureyri, merkt „Skipulagssvið".

Frestur til að gera athugasemdir við lýsinguna er til og með 30. desember 2021.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum, s.s. kennitala, nafn og netfang, eru aðeins nýttar til að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan