Sendiherra Bretlands í heimsókn

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Bryony Mathew og Halla Björk Reynisdóttir.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Bryony Mathew og Halla Björk Reynisdóttir.

Nýr sendiherra Bretlands á Íslandi, dr. Bryony Mathew, er á ferðalagi um Norðausturland og átti í gær fund með Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar Akureyrarbæjar, og Guðmundi Baldvini Guðmundssyni, formanni bæjarráðs.

Bryony lýsti miklum áhuga á að kynnast atvinnulífi og menningu Norðurlands og var á fundinum rætt vítt og breitt um mögulegt samstarf akureyrskra og breskra fyrirtækja á ýmsum sviðum.

Bryony kom til stafa sem sendiherra á Íslandi í ágúst sl. en hefur starfað á vegum bresku utanríkisþjónustunnar víða um heim síðan 2005, til að mynda í Kína, Kambódíu og á Indlandi. Áður en hún kom til Íslands var hún aðstoðarframkvæmdastjóri sérstakrar Covid-19 verkefnastjórnar bresku utanríkisþjónustunnar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan