Samgönguvikan er að hefjast

Evrópska samgönguvikan hefst á morgun, fimmtudag. Akureyrarbær tekur þátt og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nota í staðinn umhverfisvæna og heilsusamlega samgöngumáta.

Frá árinu 2002 hafa bæir og borgir víða um Evrópu tekið þátt í sameiginlegu átaki vikuna 16.-22. september. Markmiðið er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Yfirskrift vikunnar í ár er Veljum grænu leiðina – fyrir umhverfið og heilsuna.

Akureyrarbær mun næstu daga miðla fjölbreyttu efni sem tengist þema vikunnar bæði hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum. Vikan hefst á Degi íslenskrar náttúru, 16. september, og lýkur á bíllausa deginum 22. september.

Akureyringar eru hvattir til að deila á samfélagsmiðlum mynd af sér á vistvænni og heilsusamlegri ferð með myllumerkinu #samgönguvika eða #mobilityweek. Þá tökum við fagnandi á móti myndum á Facebook-síðu Akureyrarbæjar.

Í tilefni vikunnar er líka gráupplagt að finna út hvaða samgöngur henta þér best. Smelltu hér til að opna könnunina Hvaða samgöngukrútt ert þú?

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan