Rafræn undirritun allra teikninga byggingarfulltrúa

Skjámynd af kortasjá Akureyrarbæjar.
Skjámynd af kortasjá Akureyrarbæjar.

Frá og með deginum í dag, 1. mars 2023, tekur embætti byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar upp rafrænar undirritanir á allar teikningar, þ.e. aðaluppdrætti, sérteikningar og raflagnateikningar. Er þetta enn eitt skrefið í stafrænni vegferð sveitarfélagsins og liður í því að einfalda þjónustuferla sem og spara um leið tíma og kostnað.

Byggingarfulltrúi sendir beiðni um fullgilda rafræna undirritun til hönnuða eftir yfirferð og afgreiðslufund byggingarfulltrúa. Þegar því er lokið eru teikningar settar inn á kortasjá Akureyrarbæjar þar sem hönnuðir og aðrir geta sótt sér þær. Pappír er því óþarfur í umsýslu nýjustu málanna ef hönnuðir eru með rafræn skilríki.

Mál sem hafa orðið til fyrir 1. mars 2023 þarf að klára eftir eldra fyrirkomulagi.

Fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið bygg@akureyri.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan