Pokavarp slær í gegn hjá 60+ á Akureyri

Pokavarpið stundað af miklu kappi í Íþróttahöllinni.
Pokavarpið stundað af miklu kappi í Íþróttahöllinni.

Í verkefninu "Virk efri ár" sem Akureyrarbæjar hefur veg og vanda af er íbúum sem náð hafa 60 ára aldri boðið tækifæri til að hreyfa sig, hitta fólk og skemmta sér. Ýmislegt hefur verið í boði og eitt af því sem sannarlega hefur slegið í gegn er svokallað "pokavarp" sem á ensku kallast "cornhole".

"Cornhole" hefur verið spilað í Bandaríkjunum síðan seint á 19. öld í ýmis konar útgáfum. Árið 2005 voru svo stofnuð samtök þar í landi með það að leiðarljósi að staðla leikinn og bjóða upp á keppnismót. Skemmst er frá því að segja að leikurinn hefur náð gríðarlegum vinsældum vestan hafs.

Ófært þótti að kalla leikinn "cornhole" þegar hann er iðkaður hérlendis og því ákvað verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ að kalla þetta "pokavarp" sem hefur mælst vel fyrir.

Nú hefur Kristinn Hólm (sjá mynd til hliðar) smíðað þar til gera pokavarpspalla sem áhugasamir hafa aðgang að og hann pantar einnig sérhannaða keppnispoka að utan. Kristinn mætir jafnan á æfingar og kennir nýliðum reglurnar sem eru ekki flóknar.

Æfingar fara fram kl. 11 á mánudagsmorgnum í Íþróttahöllinni við Þórunnarstræti (2. hæð) og þar er leikgleðin sannarlega við völd. Áhugasamir eru eindregið hvattir til að kíkja upp í höll og taka þátt í leiknum.

Hér má sjá á Youtube hvernig leikurinn er spilaður.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan