Plokkdagurinn á Akureyri

Stóri plokkdagurinn verður haldinn næsta sunnudag, 24. apríl, og þá eru Akureyringar og landsmenn allir hvattir til að tína (plokka) rusl.

Nú er frábær tími til að hreinsa bæinn okkar og koma honum í sparifötin fyrir sumarið, enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hopar á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska.

Í Facebook-hópnum Plokk á Akureyri er tilvalið að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur með máli og myndum.

Afrakstur plokksins má skilja eftir í sérstökum gámum sem settir verða við allar grendarstöðvar bæjarins frá miðvikudeginum 20. apríl fram til mánudagsins 25. apríl. 

Stjórnendur og starfsfólk stofnana og fyrirtækja á Akureyri eru hvött til að plokka í kringum sína vinnustaði í vikunni og hita þannig upp fyrir stóra daginn.

Nokkur góð ráð:
-Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins
-Klæðum okkur eftir veðri
-Notum hanska og tangir ef þær eru til
-Virkjum alla fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan